Gott og blessað kveldið fólk, ég sit
hérna með handklæðið á hausnum, tvistað og tjúllað eins og
talibana húfa, var nefnilega að koma úr sturtu. fyrir
sturtuna fór ég nebblilega í ljós með Ingu
áwst!
Planið var að blogga smá um helgina
og kannski þennan ágæta sólríka mánudag
Föstudagur: ég fór á ógeðslegt
Fjármálanámskeið hjá BYR, ALDREI láta þér detta það í hug að
láta reyna á það, þetta var svo leiðinlegt að mér langaði að
gráta. Þegar ég kom heim voru mamma og pabbi að pakka og fara
einhvað vestur, ég og Ingi minn nýttum okkur það, og skelltum
okkur í pottinn um kveldið
bara tvö ein, með allt húsið,
það var svo kósý
Svo fórum við í sturtu og gerðum okkur
til og fórum í chill til Kidda, það hefði verið stórfínt,
hefði ég ekki verið með þennan ógeðslega magaverk og endaði á
því að sofna í rúmi gestgjafans(ein) og svaf allt
kvöldið.
Laugardagur: ég og ingi vöknuðum
frekar seint, man ekki alveg hvenar. Fórum bara inn og vorum
þar í smá stúnd
svo skutlaði mammans okkur heim til mín að
ná í kaggann
og ég gerði mig líka til, svo fórum við aftur
heim til inga, og vorum einhvað að súpa smá þar, svo kom Össi
og náði í okkur og skutlaði okkur niður í bæ. Við fórum bara
á amsterdam, ætluðum alltaf að fara einhvert annað, en það
gerðist aldrei, hehe. það var samt alveg ágætt þar svo ég
kvarta ekki. við vorum komin heim til inga um sona 7
leitið.
Sunnudagur: Við ingi vöknuðum fimm
eða hálfsex, búin að missa af öllum deginum. fóurm beint heim
til mín, horfðum á Night at the Museum eða hvað hún heitir,
en Ingi leigði hana víst daginn áður. það var bara kósý
svo fór hann bara snemma heim því hann átti að mæta snemma í
vinnu daginn eftir. Hann btw vinnur sem KOKKUR á Einar Ben,
fínn veitingastaður niðrí bæ 
Mánudagur: Ég vaknaði fyrir skólann
klukkan sjö. mætti klukkan 8 og var til 2 á fyrirlestri um
skyndihjálp, sem var stórskemmtilegt! Þar lærði ég meðal
annars það að ég er með ofnæmi fyrir geitunga/býflugna
stungum
Núna hef ég fullan rétt til að vera hrædd við
þessi kvikindi
. eftir það fór ég smá heim og svo beint í
vinnuna! Þetta var FYRSTI dagurinn minn hjá Munus sf. en þar
vinn ég sem tækniteiknari
Eftir vinnuna fór ég í ljós með
Ingu og já, þá er ég eiginlega komin
hring.
Þá er þetta komið í
bili
Lillý Kveður
hey og minna á að bloggið fyrir neðan
er líka nýtt!! LESA það líka ef þú ert ekki búin/n
